Uppsögn á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2009018

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 666. fundur - 08.09.2020

Lögð fram bókun 257. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar þar sem nefndin leggur til við bæjarráð að sá hluti lóðar sem liggur vestan við Ólafsfjarðarveg verði yfirtekin í samræmi við 8. gr. lóðarleigusamningsins.

Einnig lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar og bæjarstjóra, dags. 19.08.2020.

Bæjarráð samþykkir að umrædd lóð verði yfirtekin í samræmi við 8. gr. lóðarleigusamnings og felur deildarstjóra tæknideildar að vinna málið áfram.