Nýtt fiskveiðár 2020/2021 - Aflamarki úthlutað

Málsnúmer 2009003

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 666. fundur - 08.09.2020

Lagt fram erindi Þorsteins Hilmarssonar fh. Fiskistofu, dags. 31.08.2020 þar sem fram kemur að Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 sem hófst 1. september sl.. Stýring fiskveiða með úthlutun kvóta er hornsteinn í því starfi Fiskistofu að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafsins. Að þessu sinni var úthlutað 353 þúsund tonnum í þorskígildum talið. Þetta er 19 þúsund þorskígildistonnum minna en úthlutað var við upphaf fyrra fiskveiðiárs. Sem skýrist af nokkrum samdrætti í leyfilegum heildarafla enda farið að vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í því efni.

Tvö skip skera sig úr þegar kemur að úthlutun, Guðmundur í Nesi sem fær mestu aflamarki úthlutað eða 13.714 þorskígildistonnum og Sólberg ÓF sem fær úthlutað 10.670 þorskígildistonnum - það er um 300 tonnum meira en árið 2019.