-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Undir þessum lið vék Sólrún Júlíusdóttir af fundi og í hennar stað kom Jón Valgeir Baldursson.
Tekin til umfjöllunar tillaga að úthlutun beitarhólfa í Siglufirði til Hestamannafélagsins Glæsis.
Bæjarráð samþykkir að breyta tillögu er varðar 2ha hólf norðan Hóls, austan Hólsár samkv. uppdrætti.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar og bæjarstjóra að gera samning til þriggja ára við Hestamannafélagið Glæsi.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu að úthlutun beitarhólfa í Siglufirði til Hestamannafélagsins Glæsis.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Undir þessum lið vék Sólrún Júlíusdóttir af fundi og í hennar stað kom Jón Valgeir Baldursson.
Tekin til umfjöllunar tillaga að úthlutun beitarhólfa í Siglufirði til sauðfjáreigenda.
Bæjarráð samþykkir að breyta tillögu er varðar 2ha hólf norðan Hóls, austan Hólsár samkv. uppdrætti.
Bæjarráð samþykkir tillögu svo breytta með þremur samhljóða atkvæðum.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar og bæjarstjóra að gera samning til þriggja ára við sauðfjáreigendur.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu að úthlutun beitarhólfa í Siglufirði til sauðfjáreigenda á Siglufirði.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslu á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2016.
Bókfærð upphæð kr. 245,5 milljón er 1,4% hærri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Tillaga að viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2016, lögð fram.
Um er að ræða aukið rekstrarframlag vegna golfvallar að Hóli, aukið framlag til Hornbrekku vegna dagdvalar aldraðra, frestun á kaup á mannskapsbíl fyrir slökkvilið og heimild til lántöku og uppgreiðslu láns.
Rekstrarbreyting er samtals gjöld umfram tekjur kr. 7.234.000 og efnahagsbreyting samtals lækkun kr. 45.605.000.
Nettóbreyting tillögunnar er fjármögnuð með eigin fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukatillögu.
Bókun fundar
Til máls tók Gunnar I. Birgisson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2016.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Á 440. fundi bæjarráðs, 12. apríl 2016, var frestað afgreiðslu erindis varðandi dagdvöl aldraðra í Hornbrekku.
Bæjarráð samþykkir sérstakt framlag til Hornbrekku að upphæð kr. 2.235.000 umfram þær kr. 2.000.000 sem eru á áætlun þessa árs vegna dagdvalar aldraðra.
Jafnframt er samþykkt að vísa afgreiðslu til viðauka við fjárhagsáætlun 2016.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að gerð verði úttekt á dagdvöl aldraðra í Fjallabyggð.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum sérstakt framlag til Hornbrekku að upphæð kr. 2.235.000, umfram þær kr. 2.000.000 sem eru á áætlun þessa árs vegna dagdvalar aldraðra.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 7 atkvæðum að gerð verði úttekt á dagdvöl aldraðra í Fjallabyggð.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Á 27. fundi fræðslu- og frístundanefndar, 11. apríl 2016, samþykkti nefndin fyrir sitt leyti umsókn starfsmanns leikskóla Fjallabyggðar um launalaust ársleyfi, en lagði til við bæjarráð að settar yrðu reglur um veitingu leyfa frá störfum hvort sem um er að ræða launalaust eða á launum.
Lagt fram minnisblað fræðslu- frístunda- og menningarfulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því að lögð verði tillaga fyrir bæjarráð að launuðum sem og launalausum leyfum starfsmanna.
Afstaða til beiðni starfsmanns verður tekin þegar reglur liggja fyrir.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lagt fram til kynningar bréf slökkviliðsstjóra Fjallabyggðar til Vegagerðar, um málefni jarðganga Tröllaskaga, dagsett 11. apríl 2016.
Bókun fundar
Til máls tóku Ásgeir Logi Ásgeirsson, Gunnar I. Birgisson, Steinunn María Sveinsdóttir og Ríkharður Hólm Sigurðsson.
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
12. apríl voru opnuð tilboð í verkið Fjallabyggð, fráveita 2016, skolpdælubrunnar, vél-, raf- og stjórnbúnaður.
Varma og vélaverk ehf. bauð kr. 21.294.381,- og
Áveitan ehf. kr. 18.985.200,-.
Kostnaðaráætlun var kr. 24.860.000,-.
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Áveituna ehf.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að gengið verði til samninga við Áveituna ehf um vélbúnað skolpdælubrunna fyrir fráveitu í Fjallabyggð.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Deildarstjóri tæknideildar, óskar eftir heimild bæjarráðs til þess að bjóða út í lokuðu útboði, verkið "Ólafsfjörður fráveita 2016. Yfirfalls- og dælubrunnur við Pálsbergsgötu. Útrás og yfirfallsbrunnur við Námuveg".
Bæjarráð heimilar að farið verði í lokað útboð og eftirtöldum fyrirtækjum verði gefinn kostur á að bjóða í verkið:
Árni Helgason ehf. Ólafsfirði
Bás ehf. Siglufirði og
Smári ehf. Ólafsfirði
Útboðsgögn verði afhent 20. apríl og tilboð opnuð 3. maí 2016 kl. 14:00 að Gránugötu 24 Siglufirði.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
12. apríl voru opnuð tilboð í verkið Siglufjörður, Fráveita 2016, yfirfalls- og dælubrunnur við Aðalgötu, útrás neðan Aðalgötu, yfirfalls og dælubrunnur við Norðurtún.
Árni Helgason ehf. bauð kr. 49.821.408,- og
Bás ehf. kr. 37.862.304,-.
Kostnaðaráætlun var kr. 36.602.600,-.
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Bás ehf.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að ganga til samninga við Bás ehf. í verkið Siglufjörður, Fráveita 2016, yfirfalls- og dælubrunnur við Aðalgötu, útrás neðan Aðalgötu, yfirfalls og dælubrunnur við Norðurtún.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
12. apríl voru opnuð tilboð í malbikun fyrir Fjallabyggð 2016.
Malbikun KM ehf. bauð kr. 64.400.000,- og
Kraftfag ehf. kr. 68.197.200,-.
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Malbikun KM ehf.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Malbikun KM ehf. um malbikun fyrir Fjallabyggð 2016.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lögð fram drög að þjónustusamningi vegna veitingasölu í Menningarhúsinu Tjarnarborg við Bolla og bedda ehf.
Samningurinn gildir til 1. maí 2017.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning og felur bæjarstjóra að undirrita.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þjónustusamning vegna veitingasölu í Menningarhúsinu Tjarnarborg við Bolla og bedda ehf.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lögð fram drög að dagskrá ferðar ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Akureyrar og Siglufjarðar 24. - 25. maí.
Ráðgjafarnefndin og starfsmenn sjóðsins óska eftir að fá að hitta fulltrúa bæjarfélagsins á fundi fyrir hádegi 25. maí.
Bæjarráð samþykkir að taka á móti fulltrúum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Tekið fyrir erindi deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, dagsett 14. apríl 2016, þar sem óskað er eftir fjárveitingu til að halda skólaþing og íbúafundi um fræðslu og frístundamál v/endurskoðunar á stefnum bæjarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir tillögu frá deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála að lækkun á áætlunarliðum viðkomandi málaflokka á móti kostnaði vegna íbúafundar og skólaþings.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra varðandi lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga upp á 80 mkr. til 10 ára vegna framkvæmda við leikskóla. Þetta gerir bæjarsjóði einnig mögulegt að greiða upp óhagstætt skuldabréfalán, sem tekið var árið 2003.
Þetta mun leiða til yfir kr. 30 milljóna króna ábata fyrir bæjarsjóð á lánstímabilinu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2016.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða með 7 atkvæðum á 131. fundi bæjarstjórnar, 26. apríl 2016, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 80.000.000 kr. til 10 ára.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Bæjarstjóri óskaði eftir því við bæjarráð að fá heimild til að gera hönnunarsamning við AVH arkitekta og verkfræðistofu um viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga.
Viðbyggingin er ætluð sem mataraðstaða fyrir nemendur og starfsmenn, félagsaðstaða fyrir nemendur og fundaraðstaða bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
Með tilkomu viðbyggingarinnar sem inniheldur móttökueldhús, geymslur og sal, mun aðstaða nemenda og starfsmanna batna til muna.
Gert er ráð fyrir 5 milljónum í fjárhagsáætlun til hönnunar.
Bæjarráð samþykkir beiðni.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða með 7 atkvæðum að heimila bæjarstjóra að gera hönnunarsamning við AVH ehf. v. viðbyggingar við Menntaskólann á Tröllaskaga.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Á 440. fundi bæjarráðs, 12. apríl 2016, var tekið fyrir erindi B og G tours, þar sem óskað var eftir aðkomu bæjarfélagsins að opnun vegar um Siglufjarðarskarð.
Í bókun bæjarráðs var tiltekið að Vegagerðin hefur lofað að opna gamla Siglufjarðarveginn upp á Siglufjarðarskarð nú í vor og einnig að Vegagerðin telji að mikið þurfi til að gera við veginn Skagafjarðarmegin og ekki sé fjármagn til þess verkefnis.
14. apríl 2016, óskar fulltrúi B og G tours eftir því að snjór verði ruddur af veginum um Siglufjarðarskarð, Fljótamegin.
Þar sem vegurinn er á forræði Vegagerðar, er fulltrúi B og G tours beðinn að taka beiðni sína upp á þeim vettvangi.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Tekið fyrir erindi Arctic Freeride ehf, dagsett 13. apríl 2016, þar sem óskað er eftir leyfi Fjallabyggðar til að fá aukið landssvæði til farþegaflutninga á snjótroðara, með því að keyra inn í botn Brimnesdals og þaðan upp á topp Kistufjalls.
Þannig megi auka fjölbreytni í þeirra ferðaþjónustu og fyrirtækinu gert kleift að starfa lengur fram á vorið.
Bæjarráð samþykkir umsókn fyrir sitt leyti.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Þann 7. apríl 2016 undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. september 2015 til 31. mars 2019.
Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lögð fram til kynningar ályktun stjórnar Hrafnabjargavirkjunar hf. vegna friðunaráforma verkefnistjórnar Rammaáætlunar 3 varðandi vatnsaflsvirkjanir í Skjálfandafljóti ofan Bárðardals.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Í erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 11. apríl 2016, koma fram leiðbeiningar, hvar nálgast má upplýsingar á heimasíðu sambandsins um fasteignaskatt og ferðaþjónustu.
Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lagt fram til kynningar dreifibréf undanþágunefndar grunnskóla fyrir skólaárið 2016-2017, dagsett 11. apríl 2016, þar sem vakin er athygli á nokkrum þáttum í tengslum við umsóknir til nefndarinnar.
Undanþágunefnd grunnskóla metur umsóknir skólastjóra um heimild til að lausráða starfsmann, sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið grunnskólakennari og til að starfa sem slíkur hér á landi við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla, samkvæmt 1. gr. laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og reglugerð nr. 440/2010 um störf og starfshætti undanþágunefndar grunnskóla.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Undir þessum dagskrárlið vék Sólrún Júlíusdóttir af fundi.
Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 6. apríl 2016, er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar og sölu veitinga að Aðalgötu 10, 580 Siglufirði, áður Gistihúsið Hvanneyri.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 441. fundur - 19. apríl 2016
Lagðar fram til kynningar eftirfarandi fundargerðir:
199. fundur skipulags- og umhverfisnefndar, 14. apríl 2016.
Varðandi umfjöllun nefndarinnar um Lóðarmörk Tjarnargötu 16, 18 og 20, Siglufirði, þá leggur bæjarráð til að málið verði tekið aftur fyrir í nefndinni til frekari úrvinnslu.
25. fundur markaðs- og menningarnefndar, 14. apríl 2016.
5. fundur starfshóps um málefni Menntaskólans á Tröllaskaga, 15. apríl 2016.
Bókun fundar
Afgreiðsla 441. fundar bæjarráðs staðfest á 132. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.