Ungmennaráð Fjallabyggðar - 2. fundur - 12. mars 2012

Málsnúmer 1203006F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 77. fundur - 11.04.2012

Forseti bæjarstjórnar, Ingvar Erlingsson gerði grein fyrir fundargerð.

• Ungmennaráð Fjallabyggðar - 2. fundur - 12. mars 2012
Drög að forvarnarstefnu Fjallabyggðar lögð fram til umsagnar. Ráðið gerir ekki athugsemdir við framkomin drög.
Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar ungmennaráðs Fjallabyggðar staðfest á 77. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Ungmennaráð Fjallabyggðar - 2. fundur - 12. mars 2012
Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði Ungmennaráði grein fyrir stöðu mála. Búið er að úthluta svæði fyrir brautina og var byrjað á því keyra í hana síðasta sumar. Fjallabyggð er tilbúið að leggja til dráttavél og vagn í verkið og er efni til, er það í höndum áhugamanna um uppbygginguna að vinna verkið.
Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar ungmennaráðs Fjallabyggðar staðfest á 77. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Ungmennaráð Fjallabyggðar - 2. fundur - 12. mars 2012
Ungmennaráð Fjallabyggðar vildi kanna möguleika á kvartmílubraut á flugvellinum á Siglufirði. Íþrótta- og tómstundafulltrúi hafði samband við kvartmíluklúbbinn og fékk upplýsingar um hvað þyrfti til að standsetja slíka braut. Flugvöllurinn virðist vera ákjósanlegur staður fyrir slíka braut. Einnig hefur verið send fyrirspurn til Isavia um það hvort rekstur flugvallar fyrir sjúkraflutingar og kvartmílubraut fari saman, svar hefur ekki borist. Ráðið leggur til að samþykkt verði að slík braut verði á flugvellinum svo framarlega sem Isavia gerir ekki athugasemdir. Ráðið telur að þetta verði til þess að færa hraðakstur af götum bæjarins á öruggan afmarkaðan stað.
Bókun fundar

Til máls tóku Sólrún Júlíusdóttir og Ingvar Erlingsson.

Afgreiðsla 2. fundar ungmennaráðs Fjallabyggðar felld á 77. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum, þar sem tillagan samræmist ekki skipulagi svæðisins og núverandi nýtingu þess.

• Ungmennaráð Fjallabyggðar - 2. fundur - 12. mars 2012
Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerði grein fyrir ráðstefnu ætluð ungmennum og starfsmönnum sem starfa í ungmennaráðum. Kostnaður á mann er kr. 10.000 og innifalið er allur kostnaður, s.s. ferðakostnaður, gisting og fæði.
Bókun fundar Afgreiðsla 2. fundar ungmennaráðs Fjallabyggðar staðfest á 77. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.