Bæjarstjórn Fjallabyggðar

252. fundur 20. desember 2024 kl. 12:00 - 12:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ólafur Baldursson varafulltrúi
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson Skrifstofustjóri

1.Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 157. fundur - 13. desember 2024.

Málsnúmer 2412004FVakta málsnúmer

Fundargerð félagsmálanefndar er í fjórum liðum.
Til afgreiðslu er liður 1.
Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
Enginn tók til máls.
  • 1.1 2412016 Reglur um stuðningsþjónustu -tillaga að breytingu
    Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 157. fundur - 13. desember 2024. Lögð fram tillaga að breytingum og uppfærslum á reglum Fjallabyggðar um stuðningsþjónustu. Helstu breytingar varða ítarlegri skilgreiningu á tekjumörkum umsækjenda og að umsóknum um heimilisþrif skuli hafnað séu umsækjendur yfir tekjumörkum sem tilgreind eru, eða njóta ekki annars stuðnings samkvæmt reglunum. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum reglur um stuðningsþjónustu.

2.Starfslok fráfarandi bæjarstjóra og tímabundin ráðning nýs bæjarstjóra

Málsnúmer 2412033Vakta málsnúmer

Fyrir liggur undirritaður samningur um starfslok fráfarandi bæjarstjóra í samræmi við ráðningasamning dags.15.júlí 2022.
Jafnframt er lögð fram tillaga að tímabundinni ráðningu nýs bæjarstjóra.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um starfslok og þakkar Sigríði fyrir hennar störf í þágu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn samþykkir þá í ljósi ofangreinds að skrifstofustjóri verði ráðinn tímabundið í starf bæjarstjóra frá 20.desember 2024 til 31.mars 2025 eða þar til nýr bæjarstjóri verður ráðinn. Fyrsta varaforseta bæjarstjórnar veitt umboð til þess að ganga frá tímabundnum ráðningarsamningi við skrifstofustjóra í samráði við lögmann sveitarfélagsins með hliðsjón af ákvæðum kjarasamninga sem og samningi fráfarandi bæjarstjóra.

Samþykkt með 7 atkvæðum

Fundi slitið - kl. 12:30.