Grunnskóli Fjallabyggðar óskar eftir fulltrúa foreldra í skólaráð. Um störf skólaráðs er fjallað í
Reglugerð um skólaráð í grunnskóla 1157/2008.
Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks
skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum
fulltrúum skólaráðs.
Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags
um skólahald.
Skólaráð:
- fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
- fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um
þær eru teknar,
- tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
- fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
- fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
- fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum,
menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess
óskað,
- tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar.
Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.
Skólaráð fundar 7-8 sinnum yfir veturinn og kemur að opnum foreldrafundi í febrúar.
Áhugasamir geta sett sig í samband við Ríkey Sigurbjörnsdóttur skólastjóra í netfangið
rikey@fjallaskolar.is eða í síma 844 5819