Ástþór Árnason bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024
Myndina tók Albert Gunnlaugsson.
Þann 15. febrúar sl. var bæjarlistamaður Fjallabyggðar formlega útnefndur en Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 9. nóvember sl., að útnefna Ástþór Árnason Bæjarlistamann Fjallabyggðar árið 2024. Er það í 15. sinn sem nefndin útnefnir bæjarlistamann Fjallabyggðar.
Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði.
Menningartengdum styrkjum var úthlutað í eftirfarandi flokkum: Styrkir til menningarmála, styrkir til hátíðarhalda og stærri viðburða og styrkir til reksturs safna og setra.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti að veita styrki til þessara þriggja flokka á árinu 2024 að upphæð kr. 11.990.000.-. Þar af fara kr. 2.640.000.- til einstakra menningartengdra verkefna, kr. 5.835.000.- til hátíðarhalda og kr. 3.515.000.- til reksturs safna og setra og þjónustusamnings vegna náttúrugripasafns. Áfram verður veittur styrkur til bæjarlistamanns og er upphæð hans óbreytt frá fyrra ári kr. 300.000.-
Í flokki fræðslumála samþykkti Bæjarstjórn Fjallabyggðar að veita styrki að upphæð 595.000.- og styrki til grænna verkefna að upphæð 2.500.000.-
Ægir Bergsson formaður markaðs- og menningarnefndar setti hátíðina og Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi flutti ávarp, afhenti styrkina ásamt Ægi og veitti bæjarlistamanni viðurkenninguna. Við athöfnina voru flutt glæsileg tónlistaratriði. Fram komu þau Edda Björk Jónsdóttir sópran og Hörður Ingi Kristjánsson sem lék á píanó. Fluttu þau þrjú lög. Að lokinni athöfn bauð Fjallabyggð gestum upp á léttar veitingar frá Kaffi Klöru í Ólafsfirði.
Fjallabyggð þakkar fráfarandi bæjarlistamanni, Brynju Baldursdóttur hennar framlag til menningar og lista á árinu en allt árið 2023 vann Brynja að sýningunni Kom-andi á safnanótt í Listasafni Einars Jónssonar. Með þessari sýningu er Brynja að leitast við að skyggnast inn í órjúfanlegt samspil komu og brottfarar, eilífa hringrás umbreytinga og andartaksins þar á milli. Sýningin stendur til 25. ágúst og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að skoða sýninguna.
Fjallabyggð óskar styrkhöfum velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru og Ástþóri Árnasyni innilega til hamingju með nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024.