Útboð – Ræsting í stofnunum Fjallabyggðar á Siglufirði

Fjallabyggð óskar eftir verðtilboðum í ræstingu sem hér segir:

  1. Í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu í Leikskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði, Leikskála samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 765,7 m².

  2. Í reglulega ræstingu ásamt sérverkum í Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði, samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 1405,7, m².

  3. Í reglulega ræstingu í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði samkvæmt útboðslýsingu.
    Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 672 m².

Tilboðsgjöfum býðst annars vegar að skila inn tilboði í hverja verkeiningu fyrir sig, eða tilboði í allar verkeiningar með sérstakri tilboðsskrá.

Reiknað er með að ræsting á grundvelli útboðsins hefjist þann 2. janúar 2025 að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 31. desember 2027 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár.

Vettvangsskoðun þriðjudagur 1. október 2024

  • Ráðhús Fjallabyggðar kl. 11:00
  • Grunnskóli Fjallabyggðar kl. 14:00
  • Leikskóli Fjallabyggðar kl. 15:30.

Opnunartími tilboða: Þriðjudagur 29. október 2024 kl. 11:00

Opnunarstaður tilboða er: Ráðhús Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24, 580 Siglufirði.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt og þarf ósk um það að berast á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is.

Tilboðum og tilskildum gögnum skal skilað með rafrænum hætti á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 29. október 2024.

Verðtilboð skal auðkennt svo:

  • FJAL-2024-5: Útboð: Ræsting fyrir Ráðhús Fjallabyggðar, Siglufirði“
  • FJAL-2024-6: Útboð: Ræsting fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði“
  • FJAL-2024-7: Útboð: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði“
  • FJAL-2024-8: Útboð: Ræsting í stofnunum Fjallabyggðar á Siglufirði“


Útboðið er auglýst á http://www.utbodsvefur.is/

Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir
Netfang: rikey@fjallabyggd.is
Sími: 464 9100