Styrjueldi í Ólafsfirði

Mynd: Sigríður Ingvarsdóttir
Mynd: Sigríður Ingvarsdóttir

Mikið var um að vera í húsnæði Norðlenzka Styrjufjelagsins efh í Ólafsfirði þegar að bæjarstjóri Fjallabyggðar Sigríður Ingvarsdóttir og Bragi Kristjbjörnsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála voru þar á ferðinni. Eyþór Eyjólfsson framkvæmdastjóri félagsins segir að nú á næstunni verði farið í að strjúka hrogn og svil úr hluta af fiskinum með sérstakri aðferð. Styrjurnar geta gefið hrogn annað hvert ár og geta hrognin verið allt að 10% af þyngd hrygnunnar. Styrjurnar í Ólafsfirði eru allar jafn gamlar en mismunandi að stærð, flestar eru þær í kringum 80 kíló en sú þyngsta er í kringum 150 kíló. Styrjur geta náð allt að 80 ára aldri.

Iðnaðarmenn voru á fullu við endurbætur á húsnæðinu sem telur alls um 3500 fm. Stefnt er að enn frekari uppbyggingu á starfseminni og stækkun á stofninum ásamt fullvinnslu á afurðum. Styrjuhrogn eru afar eftirsóknarverð og dýr munaðarvara.

 Myndir frá heimsókninni