Rafrænn kynningarfundur og umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 16. október kl. 12:00.

Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:

Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
Verkefnastyrkir á sviði menningar
Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð má finna hér.

Þann 18. september kl. 16:15 verður haldinn rafræn kynningarfundur fyrir umsækjendur þar sem meðal annars verður farið yfir úthlutunarreglur sjóðsins.

Skráning á fundinn fer fram hér.