Óvissustig almannavarna enn í gildi og Siglufjarðarvegur er lokaður

Óvissustig almannavarna vegna rigningar og skriðuhættu er enn í gildi á Tröllaskaga. Siglufjarðarvegur er lokaður og verður áfram. Reglulegt eftirlit er með svæðinu og samráð haft við sérfræðinga Veðurstofu og Vegagerðar. Búið er að opna fyrir umferð um Fossveg, Hólaveg og Snorragötu á Siglufirði.
Varað er við því að fólk sé á ferð um fjöll og hlíðar á svæðinu.
Viðbragðsaðilar fylgjast grant með framvindu mála og staðan verður endurmetin á morgun.