Leysingar Alþýðuhúsinu á Siglufirði um páskana 7. - 9. apríl

Föstudaginn langa 7. apríl kl. 14.00 hefst árlega listahátíðin Leysingar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Hátíðin stendur í þrjá daga og er boðið upp á sýningu í Kompunni, þrjá gjörninga, upplestur ljóða og tvenna tónleika.
 
 
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Tekið verður við frjálsum framlögum á viðburði við innganginn.
 
Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091.


Fjallabyggð, Uppbyggingasjóður og Aðalbakrí styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu

 

Þátttakendur hátíðarinnar í ár eru:

Anna Líndal
Egill Logi Jónasson
Kristína Anna Valtýsdóttir
Karólína Rós Ólafsdóttir
Haust
Sigurður Þórir Ámundason
Venus Volcanism

Föstudaginn 7. apríl 

kl. 14:00 - 17:00 Anna Líndal opnar sýningu í Kompunni
kl. 15:00 - 15:30 Haust flytur gjörning
kl. 15:40 - 16:10  Sigurður Þórir Ámundason flytur gjörning
kl. 16:30 - 17:00 Egill Logi Jónasson flytur gjörning

Laugardaginn 8. apríl

kl. 14:00 - 17:00 Anna Líndal sýnir í Kompunni
kl. 16:00 - 16:30 Karólína Rós Ólafsdóttir upplestur eigin ljóða
kl. 20:00 - 21:00 Kristina Anna Valtýsdóttir og hljómsveit, tónleikar

Sunnudagurinn 9. apríl

kl. 14:00 - 17:00 Anna Líndal sýnir í Kompunni
kl. 15:00 - 16:00 Venus Volcanism, tónleikar