Mynd: Iceland travel tech
Íslenski ferðaklasinn og Ferðamálastofa vilja vekja athygli á ráðstefnuni Iceland Travel Tech sem fram fer í annað sinn á morgun í stafrænum heimi. Iceland Travel Tech er sameiginlegt verkefni Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasans sem miðar að því að auka áherslu á tækni í íslenskri ferðaþjónustu.
Hvernig sækjum við fram í breyttum heimi?
Þema ráðstefnunnar í ár er: Hvernig sækjum við fram í breyttum heimi? (How to move forward) þar sem tækni í hótelgeiranum og tækni til almennra framfara í fyrirtækjarekstri ferðaþjónustunnar verða í forgrunni.
Öflugir fyrirlesarar
Tveir aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða Paul Papadimitriou stofnandi Intelligencr, London og Signe Jungersted framkvæmdastjóri Group NAO í Danmörku. Innlendir fyrirlesarar eru heldur ekki af lakara tagi eins og dagskráin ber með sér:
Markaðsmál til sóknar – Spilum til að vinna:
Ósk Heiða Sveinsdóttir forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins
Spjallmenni (e.Chatbots) – Leynast tækifæri
Sigurður Svansson einn af stofnendum stafrænu auglýsingastofunnar SAHARA
Verðlagning á nýjum tímum
Margrét Polly Hansen eigandi og ráðgjafi hjá Hótelráðgjöf .
Nú ef ég ætti hótel í dag – Innleiðum réttu lausnirnar
Steinar Atli vörustjóri á ferðalausnasviði Origo
Er hægt að flýta nýsköpun í ferðaþjónustu?
Bárður Örn Gunnarsson hjá Svartitindi og LAVA Centre, ráðgjafi í nýsköpun og markaðsmálum
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra opnar ráðstefnuna og dagskráin endar á umræðupallborði.
Skráning
Ráðstefnan fer fram eingöngu á stafrænu formi þetta árið og er ókeypis. En nauðsynlegt er að skrá sig til þess að fá upplýsingar um dagskrá og erindin.
Skráning