Háskólanemarnir átta sem vinna að rannsókn á eyðibýlum á Vesturlandi og Norðausturlandi í sumar. Efri röð frá vinstri: Hildur Guðmundsdóttir, Axel Kaaber og Birkir Ingibjartsson. Neðri röð frá vinstri: Steinunn Eik Egilsdóttir, Þuríður Elísa Harðardóttir,
Í sveitum landsins er fjöldi eyðibýla og yfirgefinna íbúðarhúsa sem mörg hver eru vel byggð og geyma merka sögu. Markmið verkefnisins
Eyðibýli á Íslandi er að rannsaka og skrá umfang og menningarlegt vægi eyðibýla og annarra yfirgefinna íbúðarhúsa
í sveitum landsins.
Jafnframt að stuðla að björgun áhugaverðra og byggingarsögulega mikilvægra húsa, m.a. með endurgerð og nýtingu í
ferðaþjónustu.
Fyrstu skref verkefnisins voru tekin sumarið 2011 þegar rannsókn fór fram á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Austur-Skaftafellssýslu,
Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Afraksturinn var heildstætt yfirlit um 103 yfirgefin hús sem kom út í veglegu riti. Í sumar mun
rannsóknin ná til tveggja ólíkra landsvæða, annars vegar Norðurlands eystra og hins vegar Vesturlands. Fyrstu vettvangsferðir sumarsins hófust
í sveitarfélögunum Snæfellsbæ og Langanesbyggð 11. júní sl. Í sumar vinna átta háskólanemar úr verkfræði,
arkitektúr, jarðfræði og fornleifafræði við rannsóknina með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Þar sem til
stendur að skrásetja á komandi árum allt landið á þennan máta mun skapast verðmætur þekkingargrunnur um líf Íslendinga
fyrr á tímum.
Hugtakið eyðibýli er hér notað í nokkuð víðum skilningi. Það er látið ná yfir yfirgefin hús í sveitum og
smærri þéttbýlisstöðum, jafnvel þótt þau standi þar sem enn er önnur byggð til staðar, þ.e. ekki eingöngu á
eyðijörðum. Eyðibýli geta haft mikla þýðingu af ýmsum ástæðum. Þau geta verið merkar menningarminjar og mikilvægrar
heimildir um byggðasögu. Aldur húsanna, húsagerð eða byggingarlag þeirra getur verið sérstakt en einnig er sérstaða húsanna í
búsetulandslagi sveitanna oft mikil.
Markmið verkefnisins er að meta menningarlegt vægi einstakra húsa og varðveita þannig valin yfirgefin hús á Íslandi. Í framhaldinu að
kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að eyðibýli og yfirgefin hús í sveitum landsins verði gerð upp af eigendum þeirra og/eða
stofnað félag um rekstur og útleigu þeirra í ferðaþjónustu. Verkefnið hefur á nýliðnum vetri verið tilnefnt til
Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands, Menningarverðlauna DV og Hvatningarverðlauna iðnaðarráðherra.
Rannsóknum sumarsins lýkur með kynningu á verkefninu og bókaútgáfu á haustmánuðum. Með tíð og tíma mun
ritröðin Eyðibýli á Íslandi ná yfir öll yfirgefin íbúðarhús í sveitum landsins.
Rannsóknarhópur sumarsins er fullur tilhlökkunar fyrir komandi könnunarleiðöngrum og sendir landsmönnum fyrirfram sínar bestu kveðjur. Hægt
er að fylgjast með framgangi verkefnisins á facebook: www.facebook.com/Eydibyli
Einnig má hafa samband við rannsakendur í gegnum netfangið eydibyli@gmail.com