Evrópurútan á ferð um landið - Hofi Akreyri þriðjudaginn 17. sept. frá 16:00 - 18:00

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi. 

Um er að ræða kynningu á samstarfsáætlunum ESB á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar og æskulýðsstarfs, mun Evrópurútan hitta fjölbreytta markhópa á hverjum viðkomustað.

Hér má finna skráningarhlekkinn og nánari upplýsingar

Hér er facebook viðburðurinn á Akureyri 

 

Dagskráin er eftirfarandi:

  • Stutt almenn kynning
  • Verkefni úr heimabyggð kynnt, einhver sem hefur farið í gegnum umsóknarferlið
  • Samtal í smærri hópum um tækifæri og styrki (Starfsfólk Rannís skiptir sér niður á svæðinu og býður áhugasöm í nánara samtal)
Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar, umhverfismála, stafrænnar færni og fyrirtækjasamstarfs, auk norræns samstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:
 
  • Erasmus+
  • European Solidarity Corps
  • Horizon Europe
  • Creative Europe / MEDIA Culture
  • Stoðverkefni Erasmus+ og upplýsingaveitur
  • Nordplus - Norræna menntaáætlunin
  • Enterprise Europe Network
  • LIFE
Óhætt er að segja að evrópsk tækifæri hafi verið nýtt vel hér á landi og haft víðtæk áhrif á samfélagið og viljum við tryggja að þær nýtist í öllum byggðum landsins með sínar fjölbreyttu þarfir og styrkleika.
 
Aðgangur að viðburðum Evrópurútunnar er ókeypis og öll hjartanlega velkomin
 

Skráning á viðburð Evrópurútunnar

Hér má sjá viðkomustaði Evrópurútunnar í september ásamt dagssetningum. 

Hér má sjá dæmi um styrki fyrir um 2 milljarða til Íslands á sviði dagskrár- og kvikmyndagerðar, viðburða á sviði íslenskrar menningar og samstarfs (t.d. Big Bang tónlistarverkefni, Baskasetrið, akademíu skynjunarinnar, Lókal sviðslistahátíð, north atlantic tales): Creative Europe- myndband - yfirlit verkefna með íslenskri þátttöku sl. 7 ár (youtube.com)