Bleikur dagur í Fjallabyggð 23. október

Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar í október ár hvert.
Á Bleika daginn eru íbúar Fjallabyggðar. eins og landsmenn allir. hvött til að sína verkefninu stuðning með því að klæðast bleiku og hafa bleika litinn í fyrirrúmi sem víðast.

Verim bleik - fyrir okkur öll 

... berum bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 23. október.