Fundargerð markaðs- og menningarnefndar er í 4 liðum.
Til afgreiðslu er 4. liður.
Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
Enginn tók til máls.
.4
2308042
Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 101. fundur - 9. nóvember 2023.
Jón Kort Ólafsson vék af fundi undir þessum lið.
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar fór yfir tilnefningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2024
Fjöldi tilnefninga bárust nefndinni og þakkar hún fyrir margar og áhugaverðar tilnefningar. Einnig þakkar nefndin fráfarandi bæjarlistamanni, Brynju Baldursdóttur, fyrir framlag hennar til menningar og lista.
Markaðs- og menningarnefnd útnefnir Ástþór Árnason bæjarlistamann Fjallabyggðar 2024. Nefndin óskar Ástþóri til hamingju með útnefninguna. Bæjarlistamaður verður útnefndur formlega við afhendingu menningarstyrkja í ársbyrjun 2024.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda afgreiðslu nefndarinnar með 7 atkvæðum.
Bæjarstjórn óskar Ástþóri Árnasyni til hamingju með útnefninguna.