Bílastæði fyrir hreyfihamlaða við útibú Arion banka á Siglufirði.

Málsnúmer 1605009

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 200. fundur - 23.05.2016

Oddgeir Reynisson útibússtjóri Arion banka Siglufirði sendi inn erindi þess efnis að skipulags og umhverfisnefnd Fjallabyggðar sjái til þess að máluð verði bílastæði fyrir hreyfihamlaða gegnt útibúi bankans við Túngötu 3, Siglufirði. Jafnframt er lagt til að gangbraut verði færð nær bílastæðunum.
Nefndin samþykkir að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði málað og gangbraut færð til norðurs í samráði við tæknideild.