Bæjarráð Fjallabyggðar - 255. fundur - 24. apríl 2012

Málsnúmer 1204007F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 78. fundur - 09.05.2012

Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Staða tæknifulltrúa Fjallabyggðar hefur verið auglýst laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur rennur út 24. apríl og hafa sex umsóknir borist nú þegar.
Bæjarráð þakkar fráfarandi tæknifulltrúa Ingibjörgu Ólöfu Magnúsdóttur vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Bókun fundar
Til máls tók Bjarkey Gunnarsdóttir.
Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Borist hefur uppsögn Óla Hjálmars Ingólfssonar hjá þjónustumiðstöð Fjallabyggðar, sem óskar jafnframt eftir því að fá að vera laus frá og með 1. maí 2012.
Yfirmaður hans hefur samþykkt þá ósk.
Bæjarráð þakkar fráfarandi starfsmanni vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Í erindi Siglingastofnunar er lagt til að gengið verði til samninga við Árna Helgason ehf. á grundvelli tilboðs.
Siglingastofnun hefur yfirfarið tilboð er bárust þann 18. apríl s.l. í verkið "Sandfangari Ólafsfjörður og grjótvörn Grímsey".
Tilboð Árna Helgasonar ehf. kr. 22.125.000,- var lægst, 95,5% af kostnaðaráætlun Siglingastofnunar.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita samning er tengist verkþáttum fyrir sveitarfélagið.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255

Fjallabyggð hefur gert framkvæmdaáætlun um að ljúka uppsetningu stoðvirkja ofan við byggðina á Siglufirði, á árabilinu 2012 til 2020, og hefur fyrsti hluti þessarar áætlunar verið samþykktur af Ofanflóðasjóði með fyrirvara um fjárveitingu á fjárlögum.

Fyrirhugað er að aðal framkvæmdir hefjist vorið 2013, en á þessu ári verði unnin sú undirbúningsvinna, sem er forsenda þess að unnt verði að hefja vinnu við stoðvirkin strax þegar snjóa leysir vorið 2013.

Skipulagsstofnun hefur bent á að áður en framkvæmdaleyfi er gefið út fyrir bráðabirgðavegi að stoðvirkjasvæði í Fífladölum, þarf að leita eftir meðmælum Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. tölulið ákvæða til bráðabirgða í skipulagslögum nr. 123/2010.

Í bréfi til Skipulagsstofnunar dagsettu 20. apríl 2012 fer bæjarstjóri f. h. Fjallabyggðar fram á meðmæli stofnunarinnar vegna framkvæmdaleyfis fyrir lagningu á bráðabirgðavegi að stoðvirkjasvæði í Fífladölum á Siglufirði.

Lagt fram til kynningar.

Bókun fundar
Í tengslum við framkvæmdaáætlun um að ljúka uppsetningu stoðvirkja ofan við byggðina á Siglufirði, á árabilinu 2012 til 2020, staðfestir bæjarstjórn með 9 atkvæðum ósk bæjarstjóra f.h. Fjallabyggðar sem sett er fram í bréfi til Skipulagsstofnunar dagsettu 20. apríl 2012, þar sem farið er fram á meðmæli stofnunarinnar vegna framkvæmdaleyfis fyrir lagningu á bráðabirgðavegi að stoðvirkjasvæði í Fífladölum á Siglufirði.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255

51. fundur menningarnefndar 22. febrúar 2012 lagði til að Tjarnarborg verði gert að menningarhúsi enda töluverð breyting að eiga sér stað á nýtingu hússins. Það beri því nafnið Menningarhúsið Tjarnarborg framvegis. Auglýst verði sem fyrst eftir forstöðumanni og ræstingaraðila sem taki til starfa eigi síðar en 1. júní nk.

Einnig leggur nefndin til við bæjarstjórn að starfsmenn Menningarhússins Tjarnarborgar heyri undir fræðslu- og menningarfulltrúa.

Í framhaldi af 254. fundi bæjarráðs og 76. fundi bæjarstjórnar frá 14. mars felur bæjarráð bæjarstjóra að framfylgja niðurstöðu menningarnefndar, en auglýst verði eftir forstöðumanni og ræstingaraðila frá og með 1. ágúst 2012.

Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Í erindi frá fulltrúa Olíudreifingar er óskað eftir viðræðum við sveitarfélagið með það að markmiði að hægt verði að gefa út sameiginlega viljayfirlýsingu vegna væntanlegrar þjónustumiðstöðvar í Siglufirði fyrir olíuleit og boranir á Drekasvæðinu sem og við A. Grænland.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við Olíudreifingu.
Bókun fundar
Til máls tóku Þorbjörn Sigurðsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ingvar Erlingsson.
Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Lögð fram til kynningar greinargerð sem unnin var fyrir Vegagerðina í febrúar 2012 um endurbætur og leiðaval á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Fundargerð frá 16. apríl 2012 lögð fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Lagðar fram til kynningar tillögur umhverfisfulltrúa að verkefnum á opnum svæðum í Fjallabyggð.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Lögð fram til kynningar starfslýsing og svör er tengjast starfsmati.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Ársfundur Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar 2012 verður haldinn 25. apríl n.k.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• .12 1204006 Atvinnuátak 2012
Bæjarráð Fjallabyggðar - 255
Vinnumálastofnun hefur samþykkt framlag á móti sveitarfélaginu vegna 5 tímabundinna starfa í júní og júli fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.
Bæjarráð fagnar afgreiðslu Vinnumálastofnunar.
Bæjarráð leggur áherslu á að framlag sveitarfélagsins rúmist innan fjárheimildar fyrir opin svæði.
Bókun fundar Afgreiðsla 255. fundar bæjarráðs staðfest á 78. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.