Laus staða stuðningsfulltrúa Grunnskóla Fjallabyggðar

Laus er 75% staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Fjallabyggðar fyrir skólaárið 2024-2025.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góð samskipti.

Helstu verkefni:

  • Að sinna stuðningi við nemanda/nemendur inn í bekk í eldri deild og fylgja eftir í kennslustundir í öðrum námsgreinum.
  • Taka þátt í gæslu í frímínútum eftir atvikum.

Hæfnikröfur:

  • Hafa náð 20 ára aldri
  • Hafa gott vald á íslensku.
  • Eiga auðvelt með góð samskipti og samvinnu.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga.

Umsókn um starfið skal skilað, ásamt kynningarbréfi og ferilskrá, í tölvupósti á netfang Ásu Bjarkar Stefánsdóttur skólastýru, asabjork@fjallaskolar.is.

Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 464-9150 eða 695-9998

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2024.