Laust 80-100% starf við Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar vegna forfalla

Mynd: Magnús Sveinsson
Mynd: Magnús Sveinsson

Karlmaður óskast í 80-100% starf við Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar vegna forfalla.

  • Starfsstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði, en aðalega er um að ræða vaktir á Ólafsfirði.
  • Sökum eðli starfsins koma karlmenn einungis til greina.
  • Um tímabundið starf er að ræða í 3 mánuði.
  • Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit og gæsla í sundlaug.
  • Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
  • Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
  • Hreint sakavottorð.
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.
  • Góð tölvukunnátta er kostur.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.

Vinnutími: Morgun- og kvöldvaktir virka daga og önnur hver helgi.

Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið..

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136