Jólagjöf til starfsmanna Fjallabyggðar 2023 - Gjafabréf

Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Fjallabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Fjallabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 1. desember 2023 til og með 20. janúar 2024 en þau falla þó ekki úr gildi á árinu.  

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Fjallabyggð. Skráningarfrestur er til og með 1. nóvember nk.

Tekið er við skráningu í gegnum íbúagátt Rafræn Fjallabyggð eða á hnappnum hér fyrir neðan.

 Skráning - Ég vil taka á móti gjafabréfi  

Nánari upplýsingar veitir Bragi Freyr Kristbjörnsson, deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála á netfangið bragi@fjallabyggd.is eða í síma 464 9100