Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 3. fundur - 9. maí 2018
Málsnúmer 1804022F
Vakta málsnúmer
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 3. fundur - 9. maí 2018
Embætti Landlæknis hefur gefið út tvo lýðheilsuvísa sem ætlaðir eru til greiningar á stöðu lýðheilsu í samfélögum. Stýrihópurinn fór yfir lýðheilsuvísi um vellíðan án áfengis, annarra vímuefna og tóbaks. Ákveðið var að leita upplýsinga víðar í samfélaginu og hjá sveitarfélaginu vegna vinnunnar sem verður fram haldið á næsta fundi stýrihópsins.
Bókun fundar
Afgreiðsla 3. fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags staðfest á 161. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
-
Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 3. fundur - 9. maí 2018
Skrifað verður undir samning Fjallabyggðar við Embætti Landlæknis um Heilsueflandi samfélag. Undirskriftin mun fara fram 11. júní kl. 17.00 í Tjarnarborg. Athöfnin verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Bókun fundar
Afgreiðsla 3. fundar stýrihóps Heilsueflandi samfélags staðfest á 161. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.