Þjónustusamningur á sviði trúnaðarlækninga og heilsuverndar

Málsnúmer 1504060

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 390. fundur - 28.04.2015

Tekin til umfjöllunar þjónustusamningur við Heilsuvernd ehf á sviði trúnaðarlækninga og heilsuverndar.

Fram kom að núgildandi samningur rennur út 2016.

Það hefur tekið Heilsuvernd ehf óeðlilega langan tíma að afgreiða og svara erindum frá Fjallabyggð varðandi starfsmannamál.
Heilsuvernd hefur lagt fram sínar skýringar á töfum.

Bæjarráð samþykkir að segja upp samningi við Heilsuvernd ehf með samningsbundnum fyrirvara.