Starfsmaður óskast í afleysingar á Lindargötu 2 Siglufirði frá og með 1. ágúst nk.

Starfsmaður óskast í afleysingar á Lindargötu 2  Siglufirði frá og með 1. ágúst nk.

Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og krefjandi vinnu á litlum vinnustað?

Starfsmann vantar í afleysingar með möguleika á áframhaldandi ráðningu í vaktavinnu, á Lindargötu 2 Siglufirði.

Skilyrði er að umsækjandi sé með hreint sakavottorð.

Æskilegt er að viðkomandi:

  • hafi bílpróf
  • er stundvís
  • er tilbúin að tileinka sér nýjungar og er tilbúin að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Sótt er um starfið hér gegnum þjónustugátt á heimasíðu Fjallabyggðar.

Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Bryndísi forstöðuþroskaþjálfa í síma 866-1976.