Þjóðlagahátíðin á Siglufirði - Kysstu mig hin mjúka mær  3.-7. júlí 2024

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði -  Kysstu mig hin mjúka mær  3.-7. júlí 2024

Hún ber yfirskriftina "Kysstu mig hin mjúka mær" og sýnir gestum inn í heim tónlistar ólíkra landa og menningarheima allt frá á Eistlandi

Á hátíðinni er boðið upp á ókeypis námskeið í ókeypis námskeið í balkansöng, Blugrass-tónlist og íslenskum og dönskum þjóðdönsum auk Þjóðlagaakademíunnar sem er alþjóðlegt námskeið um íslenska og erlenda þjóðlagatónlist. Fyrirlestrar eru ýmist á íslensku eða ensku. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Gunnsteinn Ólafsson.

Ókeypis námskeið á Þjóðlagahátíðinni

Fimmtudaginn 4. júlí og föstudaginn 5. júlí 2024.

Námskeiðin eru ókeypis. Athugið að fjöldi nemenda getur verið takmarkaður.

Námskeiðin fara fram 4. og 5. júlí, tvisvar þrjá tíma í senn, ýmist kl. 9.00-12.00 eða 14.00-17.00.

  • Balkansöngur. Kennari: Zvezdana Novakovic. 9.00-12.00 báða dagana.
  • American Old Time Bluegrass and string band music. Kennarar: Casey Meikle og Katy Hill Harris. 14.00-17.00 báða dagana.
  • Íslenskir þjóðdansar. Kennari: Atli Freyr Hjaltason. 14.00-17.00. Báða dagana.
  • Danskir þjóðdansar. Kennarar: Maren Hallberg og Jørgen Dickmeiss. 9.00-12.00 báða dagana.

Skráning í Þjóðlagasetrinu á Siglufirði í síma 664 2300 eða á thjodlagasetur@gmail.com.

Skráning á námskeið.

Þjóðlagaakademían

Þjóðlagaakademían 4. – 6. júlí 2024

Þjóðlagaakademían er ókeypis.

  • Námskeið um íslenska þjóðlagatónlist – opið öllum almenningi. Fyrirlestrar eru ýmist á íslensku eða ensku. Ef erlendir gestir sækja akademíuna er eingöngu töluð enska
  • Námskeiðið fer fram á kirkjuloftinu í Siglufjarðarkirkju.
  • Umsjónarmaður: Gunnsteinn Ólafsson

Í Þjóðlagaakademíunni verða kennd íslensk þjóðlög, þ.á.m. íslensk tvísöngslög. Þá verða dansaðir þjóðdansar og kennt að leika á langspil og íslenska fiðlu. Einnig verða haldin erindi um erlenda þjóðlaga- og miðaldatónlist.

Hér má sjá dagskrá þjóðlagaakademíunnar frá fyrri árum.

Þjóðlagaakademían fer fram á kirkjuloftinu, á efstu hæð Siglufjarðarkirkju. Skráning á thjodlagasetur@gmail.com.

Fimmtudagur 4. júlí 2024

 10.00-11.00American old time and early bluegrass music – Daniel Bohlman og Casey Meikle, Bandaríkjunum
11.00-12.00 – Íslenskir þjóðdansar í sögulegu ljósi – Atli Freyr Hjaltason
13.00-14.00 – Vesturfararnir og tónlist þeirra – Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
14.00-15.00 – Balkantónlist – Zveztana Novakovic, Slóveníu
15.00-16.00 – Bjarni Þorsteinsson og þjóðlagasöfnun hans – Gunnsteinn Ólafsson

Föstudagur 5. júlí 2024

10.00-11.00 – Íslenskur tvísöngur – Gunnsteinn Ólafsson
11.00-12.00 – Norsk þjóðlög í norskri píanótónlist – Joachim Kwetzinsky
13.00-14.00 – Íslensk þjóðlög og evrópsk upprunahljóðfæri – Aurora Rósudóttir Luciano, Vera Hjördís Matsdóttir, Laura Audonneet, Marguerite Maire
14.00-15.00 – Dönsk þjóðlagatónlist – Maren Hallberg og Jørgen Dickmeiss
15.00-16.00 – Langspil og íslensk fiðla – Ásta Sigríður Arnardóttir

Laugardagur 6. júlí 2024

10.00-11.00 Íslenskir þjóðdansar. Atli Freyr Hjaltason og Elizabeth Katrín Mason
11.00-12.00 Danskir þjóðdansar – Maren Hallberg og Jørgen Dickmeiss

Nemendur sem óska að fá einingar fyrir Þjóðlagaakademíuna í tengslum við háskólanám sitt þurfa að skrifa verkefni um íslensk þjóðlög og skila því fyrir 15. ágúst. Verkefnið getur verið á íslensku, dönsku, þýsku, norsku, sænsku eða ensku. Skráning á thjodlagasetur@gmail.com.

 

Miðasala er á tix.is. Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.siglofestival.com.

Dagskrá og nánari upplýsingar 

RÚV English Radio - FOLK MUSIC FESTIVAL, SIGLUFJÖRÐUR