15.07.2024
Síðastliðinn laugardag voru tekin fjögur vatnsýni í vatnsveitunni á Siglufirði og reyndust þau öll ómenguð samkvæmt tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Óhætt er því að nota neysluvatn á Slglufirði.
Sjá tilkyningu á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Lesa meira
08.07.2024
Fjallabyggð óskar eftir verðtilboðum í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu í Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði, Leikhóla samkvæmt útboðslýsingu.
Heildarfjöldi fermetra í útboðinu er 379,2 m².
Reiknað er með að ræsting á grundvelli útboðsins hefjist þann 12. ágúst 2024 og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 11. ágúst 2027, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár.
Lesa meira
27.06.2024
Árlega listahátíðin Frjó sem haldin er í Fjallabyggð á vegum Alþýðuhússins á Siglufirði fer fram dagana 12. - 14. júlí 2024
Lesa meira
15.07.2024
Sápuboltinn verður haldinn helgina 19-21 júlí
Lesa meira
14.07.2024
Rafmagnslaust verður út frá aðveitustöð á Siglufirði þann 16.7.2024 frá kl 23:00 til kl 6:30 þann 17.07.2024 vegna vinnu í aðveitustöð.
Lesa meira
13.07.2024
Mögulega ófullnægjandi vatnsgæði á Siglufirði - íbúar hvattir til að sjóða neysluvatn.
Heilbrigðiseftirlit norðurlands vestra tók sýni í gær þann 12. júlí 2024 í einu íbúðarhúsi norðarlega á Siglufirði og kom munnleg tilkynning frá rannsóknarstofu í dag um að E. coli baktería hefði greinst í vatninu.
Lesa meira
11.07.2024
Óskað er eftir áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér rekstur og starfsemi skíðasvæðisins í Skarðsdal með það að markmiði að efla skíðaiðkun, auka aðsókn að skíðasvæðinu og byggja upp jákvæða ímynd þess.
Lesa meira
09.07.2024
Frá og með 24. júní tekur við frístundaakstur milli byggðarkjarnanna. Rútan fer frá skólahúsinu við Norðurgötu Siglufirði og Vallarhúsinu Ólafsfirði.
Lesa meira
08.07.2024
Cecilie Annette Willoch, sendiherra Noregs á Íslandi kom í heimsókn til okkar í Fjallabyggð í gær og naut meðal annars viðburða á Þjóðlagahátíð, heimsótti Síldarminjasafnið og fyrirtæki í Fjallabyggð.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar og Anna Lind Björnsdóttir verkefnastjóri SSNE á Tröllaskaga tóku vel á móti henni.
Lesa meira
08.07.2024
Bæjarstjórn Fjallabyggðar 246. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði 10. júlí 2024 kl. 13:00.
Lesa meira