Fréttir

Nýjung á vefnun - upplýsingavefur Skíðasvæðis

Opnaður hefur verið upplýsingavefur fyrir Skíðasvæðið á Siglufirði og er hægt að nálgast upplýsingarnar hér til vinstri.Stefnt er að því þegar búið verður að opna svæðið að setja inn upplýsingar um veður og færi á hverjum degi þannig að auðvelt verður fyrir áhugasama að fylgjast með ástandi svæðisins og opnunartímum.
Lesa meira

Fyrsta loðnan á þessu ári komin til Siglufjarðar!

Fyrsti loðnufarmurinn á þessu ári kom til Siglufjarðar í dag þegar Guðmundur Ólafur ÓF, kom að landi með um 1.300 tonn af loðnu kl. 14.00 Að venju afhenti forseti bæjarstjórnar áhöfn fyrsta loðnuskipsins tertu frá bæjarstjórn og kom það í hlut Sigurðar Jóhannessonar bæjarfulltrúa og forseta bæjarstjórnar í fjarveru Guðnýjar Pálsdóttur að afhenda tertuna. Von var á öðrum farmi síðar í dag en áætlað er að Börkur NK komi til hafnar á Siglufirði með um 1.700 tonn af loðnu og er því hægt að segja að byrjunin á vertíðinni hér fyrir norðan lofi góðu og verður vonandi framhald á.
Lesa meira

Fyrsta loðnan á þessu ári komin til Siglufjarðar!

Fyrsti loðnufarmurinn á þessu ári kom til Siglufjarðar í dag þegar Guðmundur Ólafur ÓF, kom að landi með um 1.300 tonn af loðnu kl. 14.00 Að venju afhenti forseti bæjarstjórnar áhöfn fyrsta loðnuskipsins tertu frá bæjarstjórn og kom það í hlut Sigurðar Jóhannessonar bæjarfulltrúa og forseta bæjarstjórnar í fjarveru Guðnýjar Pálsdóttur að afhenda tertuna. Von var á öðrum farmi síðar í dag en áætlað er að Börkur NK komi til hafnar á Siglufirði með um 1.700 tonn af loðnu og er því hægt að segja að byrjunin á vertíðinni hér fyrir norðan lofi góðu og verður vonandi framhald á.Frekari frétta af loðnuvertíðinni er að vænta í fyrramálið.
Lesa meira

KS hlýtur styrk úr Menningar - og viðurkenningarsjóði KEA svf.

Knattspyrnufélag Siglufjarðar hlaut kr. 100.000,- styrk úr Menningar - og viðurkenningarsjóði KEA svf. þegar úthlutað var samtals 3,9 milljónum úr sjóðnum þann 27. desember sl. Styrkinn hlaut KS vegna uppbyggingarstarfs í kvennaknattspyrnu og verður peningunum varið til áframhaldandi uppbyggingar. Hörður Bjarnason veitti styrknum móttöku í samsæti sem haldið var á Hótel KEA. 107 umsóknir bárust sjóðnum og er hægt að nálgast upplýsingar um úthlutanir á heimasíðu KEA, www.kea.is.
Lesa meira

Viðurkenningar fyrir jólaskreytingar

Tækni - og umhverfisnefnd Siglufjarðar hefur veitt viðurkenningar til einstaklinga fyrir jólaskreytingar. Þrenn verðlaun voru veitt að þessu sinni. Helga Hermannsdóttir og Jón Salmannsson, íbúar að Hvanneyrarbraut 59 fengu verðlaun fyrir bestu jólaskreytinguna 2002. Guðný Helgadóttir og Andrés Stefánsson, íbúar að Hverfisgötu 34, fengu viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu undanfarin ár. Að lokum var svo veitt viðurkenning fyrir frumlega jólaskreytingu og hana hlutu Margrét R Christiansen og Pétur Hlöðversson, íbúar að Suðurgötu 55.
Lesa meira

Hugleiðing í aðdraganda jóla og áramóta.

Kæru íbúar Siglufjarðar.Nú þegar árið er að renna sitt skeið og jólahátíðin nálgast er ekki úr vegi að líta aðeins yfir farinn veg og velta fyrir sér hvernig mál horfa fyrir íbúum Siglufjarðar á þessum tímamótum.Íbúum fækkaði nokkuð í bænum okkar á árinu sem er að líða og er það mjög miður. Þrátt fyrir að ýmis nýsprotastarfsemi hafi verið að þróast í atvinnulífinu á undanförnum árum og ekki hafi borið á miklu atvinnuleysi heldur okkur áfram að fækka. Sú þensla sem verið hefur á suðvesturhorninu virðist enn toga til sín fólk og þá helst fólk úr jaðarbyggðum eins og okkar. Óskandi er að við förum að sjá fyrir endann á þessari þróun og tel ég margt í farvatninu sem gefi okkur vonir um að sú verði raunin.Það er ekki ástæða til annars fyrir okkur Siglfirðinga en bera höfuðin hátt og líta björtum augum fram á veg. Ef fram heldur sem horfir verður mikið um að vera hjá okkur næstu ár. Framkvæmdir hefjast við ný snjóflóðavarnarmannvirki á næsta ári sem standa munu yfir óslitið til ársins 2010 ef áætlanir standast. Munu mannvirkin auka mjög öryggi íbúanna og jafnframt skapa spennandi útivistarumhverfi ef rétt er á málum haldið. Jafnframt hefst á árinu undirbúningur vegna fyrirhugaðrar jarðgangagerðar um Héðinsfjörð til Ólafsfjarðar en sú framkvæmd verður boðin út í febrúar n.k. Er hugsanlegt að strax næsta sumar verði hafist handa við vega- og brúargerð í botni fjarðarins sem er liður í undirbúningnum. Framkvæmdir við sjálf jarðgöngin eiga síðan að hefjast árið 2004. Af ofansögðu er ljóst að umsvif verða mikil á næstu árum. Nauðsynlegt er fyrir okkur að nýta vel þau tækifæri sem þetta skapar okkur til bætts mannlífs í okkar ágæta bæ. Horft er mjög til þess í vinnu við gerð nýs aðalskipulags til ársins 2022 sem nú stendur yfir.Bæjarstjórn Siglufjarðar og starfsfólk Siglufjarðarkaupstaðar senda Siglfirðingum og fjölskyldum þeirra nær og fjær og landsmönnum öllum óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Guðmundur Guðlaugssonbæjarstjóri

Tilkynning frá Tónlistarskóla Siglufjarðar

Jólatónleikar nemenda skólans verða í kirkjunni fimmtudaginn 19. desember kl. 20.00. Athugið breytta dagsetningu!Fjölbreytt efnisskrá. Allir velkomnir.
Lesa meira