Fréttir

Þjóðlagahátíðin

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði í áttunda sinnArmensk tónlist, amerískt langspil, tvísöngur og klezmertónlist er á meðal þess sem boðið verður upp á áttundu alþjóðlegu þjóðlagahátíðinni á Siglufirði í sumar. Hún stendur að þessu sinni yfir dagana 4.-8. júlí og munu um eitthundrað listamenn frá sjö löndum koma fram á hátíðinni. Hátíðin ber yfirskriftina Ríma enda munu kvæðamenn kveðast á við erlenda og innlenda tónlistarmenn á tónleikum þar sem gætir ólíkra stílbrigða. Að vanda standa fjölbreytt námskeið gestum hátíðarinnar til boða sem og brúðuleikhús, ganga um Siglufjarðarskarð og vegleg uppskeruhátíð. Á meðal þeirra erlendu listamanna sem skemmta á Þjóðlagahátíð má nefna heimstónlistarflokkinn Andromedu4 og Jerry Rockwell langspilsleikara frá Bandaríkjunum, Armen Babakhanian píanóleikara og söngkonuna Susanna Martirosyan frá Aremeníu, Tríó Hanne Juul frá Svíþjóð, þýska kammerkórinn Cappella con moto, búlgörsku sveitina Narodna Musika og Unni Lövlid þjóðlagasöngkonu og Joachim Kjelsaas Kwetzinsky píanóleikara frá Noregi. Þá koma margir helstu þjóðlagatónlistarmenn okkar Íslendinga fram á hátíðinni, svo sem Bára Grímsdóttir ásamt Chris Foster, Steindór Andersen, Kvintbræður ásamt Mörtu G. Halldórsdóttur og tenórarnir þrír Gissur Páll Gissurarson, Hlöðver Sigurðsson og Þorsteinn Árbjörnsson með Renötu Iván píanóleikara. Þá syngur Kristjana Arngrímsdóttir lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar og Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir sellóleikari frumflytur nýtt verk eftir Hafdísi Bjarnadóttur tónskáld ásamt Eriku Södersten á víólu. Þá leikur Sinfóníuhljómsveit unga fólksins píanókonsert eftir armenska tónskáldið John Sarkissian og verk eftir Grieg.Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar: siglo.is/festival.
Lesa meira

Leikfélag Siglufjarðar

FréttatilkynningAlþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er það brúðuleikhúslistamaðurinn Bernd Ogrodnik, sem hefur búið og starfað á Íslandi síðustu ár og auðgað íslenskt leikhúslíf eftirminnilega.Leikfélag Siglufjarðar tekur virkan þátt í því að opna dyr leikhússins í tilefni dagsins.Við byrjum á því að heimsækja Grunnskólann á Siglufirði þar ætlum við að kynna leikfélagið, og fara í spunaleik með börnunum þannig að þau fái aðeins að kynnast leiklist sjálf. Á sunnudaginn á milli klukkan 14 og 17 verður opið hús hjá okkur og þar ætlum við að taka á móti fólki og sýna salinn okkar og búningageymslu, við ætlum líka að hafa rúllandi myndir á skjá þar sem við eigum margar myndir af leikferlinu síðan í haust þegar við settum upp ,,Látt u ekki deigan síga Guðmundur", eftir þær stöllur Hlín Agnarsdóttir og Eddu Björg vins. Þá ætlar ljósamaðurinn okkar að vera á staðnum og sýna ljósaborðið og svo framveigis. Eflaust verður farið í spuna leiki á meðan húsið er opið.Á þriðjudaginn ætlum við í leikskólann kl: 10.00 og þar ætlum við að leiklesa þr jár barnabækur, það eru bækur um Snuðru og Tuðru eftri Iðunni Steinsdóttir.Um kvöldið á að úthluta styrkjum hjá Menningarsjóð Sparisjóðsins og flytjum við ávarp Alþjóða leiklistardagsins sem að þessu sinni er eftir Bernd Ogrodnik.Nánari upplýsingar veitir Daníel í síma 849-1911
Lesa meira

Sveitarfélagið Húnavatnshreppur

Fréttatilkynning21.mars 2007Laugardaginn 24.mars heldur sveitarfélagið Húnavatnshreppur hugmynda og hvatningarþing um ferðaþjónustu í Austur Húnavatnssýslu. Þingið verður haldið á Húnavöllum og hefst kl. 13:15. Ráðgert er að því ljúki kl 16: 30. Ferðaþjónusta í Austur Húnavatnssýslu hefur farið vaxandi síðustu ár líkt og í öðrum landshlutum. Svæðið er þekkt fyrir fjölbreytta möguleika í stangveiði, frábærar reiðleiðir og aðra útivistarmöguleika. Ein mesta útivistarparadís hálendisins, Hveravellir, er í sýslunni og þar stefna Húnvetningar á uppbyggingu og bætta þjónustu við ferðamenn á næstu misserum. Einnig er menningarferðaþjónustan að sækja á. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, Hafííssetrið í gamla Hillebrandtshúsinu, Kántrýþemað á Skagaströnd, Söguslóð Vatnsdælasögu, Þingeyrakirkja og Klausturstofa eru dæmi um menningarferðaþjónustu sem kveðið hefur að. Mjög áhugaverðir fyrirlesarar munu halda tölu um þá möguleika sem ferðaþjónustan felur í sér. Eftir að sveitarstjóri Húnavatnshrepps setur þingið mun Kjartan Bollason frá ferðamálabraut Hólaskóla fjalla um tækifæri í náttúrutengdri ferðaþjónustu. Þór Hjaltalín mun fjalla um ferðaþjónustuna frá sjónarhóli menningarferðaþjónustu . Elín Aradóttir og Sigurður Steingrímsson frá Imrpru Nýsköðunarmiðstöð munu kynna fyrir gestum þann stuðning sem Impra veitir atvinnulífinu. Inger Helgadóttir á Indriðastöðum í Skorradal mun segja frá sinni reynslu af uppbyggingu og rekstri ferðaþjónustu. Eftir framsöguerindi verða pallborðsumræður. Að hætti Húnvetninga má gera ráð fyrir fjörugum umræðum og efnilegum hugmyndum. Þingið er öllum opið og kaffiveitingar verða í boði Húnavatnshrepps.
Lesa meira

Myndir

Bæjaryfirvöld og aðilar í ferðaþjónustu eru að fara af stað með markaðskynningu á Fjallabyggð.Við óskum eftir mynd eða myndum frá þér.Myndirnar þurfa að vera í sem bestu gæðum. (að lágmarki 300 dpi) og þarf að skila þeim á diski (cd). Ekki má vera texti né dagsetning á myndunum.Dómnefnd metur myndirnar og verður í framhaldi af því óskað eftir kaupum á þeim myndum sem dómnefnd velur.Myndir :Árstíðarmyndir.Bryggjulíf, bátar, löndun, beitning.Hátíðar- og mannfagnaðarmyndir.Landslagsmyndir.Og hvað annað sem henta þykir.Myndum skal skilað á bæjarskrifstofur Fjallabyggðar fyrir 1. apríl, í umslagi merktu "Myndasamkeppni", með upplýsingum um höfund.Verum samstíga í að kynna sveitarfélagið.
Lesa meira

Myndir

Bæjaryfirvöld og aðilar í ferðaþjónustu eru að fara af stað með markaðskynningu á Fjallabyggð.Við óskum eftir mynd eða myndum frá þér.Myndirnar þurfa að vera í sem bestu gæðum. (að lágmarki 300 dpi) og þarf að skila þeim á diski (cd). Ekki má vera texti né dagsetning á myndunum.Dómnefnd metur myndirnar og verður í framhaldi af því óskað eftir kaupum á þeim myndum sem dómnefnd velur.Myndir :Árstíðarmyndir.Bryggjulíf, bátar, löndun, beitning.Hátíðar- og mannfagnaðarmyndir.Landslagsmyndir.Og hvað annað sem henta þykir.Myndum skal skilað á bæjarskrifstofur Fjallabyggðar fyrir 1. apríl, í umslagi merktu "Myndasamkeppni", með upplýsingum um höfund.Verum samstíga í að kynna sveitarfélagið.
Lesa meira

Grunnskóli Ólafsfjarðar - skólaliði

Grunnskóli Ólafsfjarðar auglýsir starf skólaliða við ræstingar laust til umsóknar. Um er að ræða 50 % starf í Barnaskólahúsinu og vinnutími er eftir hádegi.Umsóknarfrestur er til 12. mars n.k. og ber að skila umsóknum til skólastjóra.Allar nánari upplýsingar veitir húsvörður. Ólafsfirði 1. mars Þórgunnur ReykjalínSkólastjóri
Lesa meira

Námskeið við Hólaskóla

Námskeið við Hólaskóla - náttúrutengd ferðaþjónusta.sjá vefslóð http://www.holar.namsk.htm#2
Lesa meira

Íþróttamaður ársins 2006 á Siglufirði

Lesa meira

Kleifaberg ÓF-2 selt

Þormóður rammi – Sæberg hf. hefur selt Kleifaberg ÓF-2 til Brims hf. og verður skipið afhent nýjum eiganda 30. mars næstkomandi. Brim hf. býður öllum skipverjum Kleifabergs ÓF-2 áframhaldandi á skiprúm skipinu. Þormóður rammi – Sæberg hf. vonast til að með þessari ráðstöfun sé óvissu eytt um atvinnuöryggi skipverja á Kleifabergi ÓF-2, fram að komu nýs skips sem verið er að smíða í Noregi.Frétt fengin af www.rammi.is
Lesa meira

Þekkir þú...híbýli mannanna?

Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri státar af safnkosti uppá 2,5 milljónir mynda. Margar myndanna eru óþekktar. Nú óskar Minjasafnið eftir aðstoð almennings við það að koma nafni á andlit og heiti á hús og önnur mannvirki. Minjasafnið á Akureyri opnaði af því tilefni sýninguna Þekkir þú... híbýli mannanna? síðastliðinn laugardag. Á sýningunni er að finna 70 myndir sem þekktir og óþekktir ljósmyndarar tóku fyrr á tímum. Meðal þekktra ljósmyndara sem eiga myndir á sýningunni má nefna Hallgrím Einarsson og Arthur Gook. Flestar myndanna eru frá Akureyri og úr Eyjafirði en einnig frá öðrum landshlutum. Í sólstofunni er hægt að fletta myndum af óþekktum einstaklingum auk möppu með mannamyndum úr eigu Minjasafnins sem birtust í Degi á árunum 1990 – 2000. Hefurðu séð annað eins? Nokkrir sérstæðir gripir úr Minjasafninu verða einnig til sýnis. Þeir eru óvenjulegir og sumir óþekktir, og geta gestir spreytt sig á að finna út heiti þeirra og hlutverk. Í tilefni af 20 ára afmæli ljósmyndadeildar Minjasafnins mun Hörður Geirsson, safnvörður, vera með sérstaka kynningu á tækjum og ljósmyndatækni ólíkra tímabila laugardagana 10. mars og 24. mars kl 14. Þá geta menn kynnt sér hvernig myndir urðu til allt frá því þær voru teknar á myndavélina til þess að standa í ramma á heiðursstað á heimilinu.Sýningin er opin alla laugardaga milli klukkan 14 og 16. Aðgangur á safnið er ókeypis meðan á sýningunni stendur til 28.apríl.
Lesa meira