30.03.2022
Sunnudaginn 3. apríl kl. 14.30 verður Hrafnhildur Ýr Denche Vilbertsdóttir með erindi á Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Erindið fjallar um áhrif langvinnrar streitu og áfalla á taugakerfið og sál og líkamsmiðaða áfallameðferð.
Kaffiveitingar og allir velkomnir.
Lesa meira
29.03.2022
Föstudaginn 1. apríl hefjast framkvæmdir við íþróttahúsið í Ólafsfirði, fyrirhugað er að endurnýja búningsklefa og sturtuklefa stofnunarinnar. Sundlaugin í Ólafsfirði verður því lokuð á tímabilinu 1. apríl 2022 – 31. maí 2022.
Lesa meira
28.03.2022
Stíll hönnunarkeppni Samfés fór fram í Lindaskóla Kópavogi. Þemað í ár var Geimurinn.
Félagsmiðstöðin Neon tók þátt í keppninni og voru fulltrúar Neons þær Þórný Harpa R. Heimisdóttir, Sandra Rós Bryndísardóttir, Laufey Petra Þorgeirsdóttir og Margrét Sigurðardóttir sem var model hópsins og sýndi kjólinn í keppninni. Þeim til ráðgjafar og halds og trausts var Brynhildur Reykjalín Vilhjálmsdóttir.
Lesa meira
25.03.2022
Um helgina verður Skíðamót Íslands haldið í Ólafsfirði og á Dalvík.
Alpagreinarnar fara fram á Dalvík og skíðagangan á Ólafsfirði. Mótshaldarar eru skíðafélögin á Dalvík og Ólafsfirði sem hafa í áratugi haft gott samstarf um stórmót sem þessi.
Lesa meira
25.03.2022
Bæjarráð samþykkir að Fjallabyggð taki þátt í móttöku flóttafólks frá Úkraínu og felur bæjarstjóra að láta ráðuneytið vita um vilja sveitarfélagsins hvað það varðar og að hafa að öðru leyti umsjón með viðræðum við ráðuneytið um hugsanlega móttöku flóttamanna.
Lesa meira
23.03.2022
Grunnskóli Fjallabyggðar sigraði Fjármálaleika árið 2022. Um 800 nemendur í 32 grunnskólum víðsvegar á landinu tóku þátt, en mikil keppni var um efstu sætin.
Lesa meira
22.03.2022
Ertu með hús, íbúð eða annað viðeigandi húsnæðisúrræði fyrir flóttafólk á leið til Íslands sem er að flýja ástandið í Úkraínu? Ef svo er, endilega fylltu út eyðublaðið sem þú finnur Ísland.is
Þarna getur fólk sem hefur samþykkta íbúðir, hús eða aðstöðu sett inn eignina og þar með látið vita að það sé tilbúið að leigja húsnæði sitt fyrir flóttamenn. Hvort sem það er til skemmri eða lengri tíma.
Lesa meira
21.03.2022
Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta fyrir árið 2022. Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 900 m.kr.
Lesa meira
21.03.2022
Sveitarstjórnakosningar verða laugardaginn 14. maí 2022
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 2022 rennur út kl. 12 á hádegi 8. apríl nk.
Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar mun veita framboðslistum og meðmælendalistum vegna þeirra móttöku föstudaginn 8. apríl 2022 frá kl. 11:00 til kl. 12:00 í Ráðhúsinu á Siglufirði, 2. hæð.
Lesa meira
18.03.2022
Í gær, fimmtudaginn 17. mars var Aðalheiður S. Eysteinsdóttir útnefnd bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2022. Er það í 13. sinn sem bæjarlistamaður er útnefndur í Fjallabyggð.
Lesa meira